Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008
26.6.2008 | 13:56
Halló allir
Jæja kæru fyrrverandi bekkjarfélagar og fermingarsystkyn, mig langar aðeins að misnota aðstöðu mína hér og segja ykkur frá stórskemmtilegu íþróttamóti sem að við Hornfirðingar ætlum að halda í haust eða nánar tiltekið helgina 19-21 september. Í boði verður blak, bridge, knattspyrna, golf, badminton og frjálsar íþróttir þannig að allir ættu að getað fundið eitthvað fyrir sig. Þetta mót er einungis fyrir aldurinn 30+ og hefst á föstudeginum og keppt er allan laugardaginn og síðan verður Hornfirskt matar hlaðborð með skemmtiatriðum og svo hörku ball á eftir, sunnudagurinn fer í rólegheit og heimferð fyrir einhverja, öllum er boðið að taka þátt í liði eða sem einstaklingar og óháð búsetu, allt verður þetta á vægu verði og einhver gisti tilboð verða í boði. Mér finnst þetta frábær hugmynd enda er ég í undirbúnings nefndinni og endilega segið öllum frá þessu, því að það er nú alltaf að maður sem þekkir mann sem að þekkir mann og það er svo ódýr fréttaflutningur. En annars hlakka ég nú bara til að hitta ykkur í afmælinu.
Kveðja Þórhalla
Bloggar | Breytt 30.6.2008 kl. 22:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.6.2008 | 13:28
Kasta kveðju :)
Sæl.
Langar bara að kasta á ykkur smá kveðju. Er á leiðinni til DK á morgun, í sumarbústað við Grönninghoved Strand. Ætla að njóta lífsins í botn og ná mér í orku :) Enn kæru bekkjarfélagar hvað á að gera skemmtilegt í sumar?
En annars ef einhvert ykkar á leið um Skagann þá endilega að kíkja inn í Eikarskóga 4 í kaffi :)
Bestu kveðjur, Elsa Lára sem er komin með nettan flughræðsufiðring í magann.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Börnin okkar
- Þórdís Eva Elsu barn
- Guðrún Ása, Aníta og Aðalsteinn Þórhöllu börn
- Dagmar og Elín Óskarsdætur
- Nína Ingibjörg Einarsbörn
- Gunnar 'Oli jennýar börn
Bloggsíður
- Elsa Lára Elsu blogg
- Þorsteinn Atli Elsu barn
- Óskar Ara Skara blogg
- Raggi Páls Ragga blogg

