Kveðja frá Stebba

Mikið varð ég glaður þegar ég opnaði bréfið frá ykkur en leiður að sama skapi þegar ég sá dagsetninguna því ég sé mér ekki fært að komast á verkalýðsdaginn þar sem ég er í námi með vinnunni þessa stundina og verð í prófum á þessum tíma.  Flest ykkar hef ég ekki hitt síðan ég flutti frá Höfn.  Ég sé að Vala hefur komið 2 síðan hún flutti og mínar heimsóknir eru jafnmargar.  Síðast kom ég með foreldrum mínum, Torfa bróður, konu hans, minni konu og syni okkar.  Það var um verslunarmannahelgina 2006.

 

Það var fyrir ýmsar sakir mögnuð heimsókn.  Þetta var ein veðursælasta helgi sem ég man eftir.  Ég fór á alla þá staði sem ég þvældist um sem strákur, labbaði um gömlu skólalóðin, skoðaði fótboltavöllinn, fór í sund, niður á höfn, mitt gamla æskuheimili sem er vart íbúðarhæft lengur, fann auðasvæðið þar sem krakkarnir léku sér, gekk fram hjá gömlu búðinni sem var beint á móti þar sem Siggi átti heima fyrst (man ekki hvað karlinn hét sem átti hana) þar voru keyptar ófáar Töggur, Lönguvitleysu, Einarslund, staldraði við Sindrabæ, fór í kirkjugarðinn og vottaði Ragga Björns virðingu mína.  Fór svo á golfvöllinn og tók einn hring með pabba.  Ég hitti engan af mínu gömlu félögum enda fríhelgi og flestir sjálfsagt farið úr bænum.  Ég gisti í gamla elliheimilinu sem Halldór er búinn að breyta í fyrirtaks gistiheimili.

 

Ég bið vel að heilsa ykkur og vona að ykkur líði öllum vel.  Það líður varla sú vika að ég hugsi ekki til æskuáranna á Höfn.  Það eru og verða dýrmætar minngar.

Vonandi verða ekki 20 ár þangað til við hittumst næst.

 

Kveðja

Stebbi

 

p.s.

Setti inn nokkrar myndir, sennilega úr 10 eða 11 ára afmælinu mínu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ öll sömul, ég er svo mikið nörd eða ekki nörd í þessum tölvumálum, var að reyna að setja inn færslu en gafst upp eftir nokkrar tilraunir. Ákvað að kommenta bara hérna á færsluna hjá Stebba. Ég mæti og hlakka mikið til að hitta ykkur.

Kveðja Maggi

Maggi (IP-tala skráð) 12.4.2009 kl. 23:22

2 Smámynd: Árgangur 75

hæ hæ jenný hér!ég kem pottþétt

Árgangur 75 , 15.4.2009 kl. 12:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Árgangur 75
Árgangur 75

Við erum árgangur 75 frá Höfn í Hornafirði. Við höldum þessari síðu uppi til þess að undirbúa 20 ára fermingarmót okkar sem haldið verður árið 2009 :)

Ef þú smellir á myndina hér í boxinu þá finnur þú upplýsingar um okkur.

Mars 2010
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband