4.5.2009 | 23:03
Myndir :)
Hæ hæ.
Komnar inn myndir frá helginni. Slóðin er http://www.123.is/elsalara og þar undir myndaalbúm. Þið þurfið að vísu aðgangsorð til þess að skoða albúmið og ef þið hafið áhuga þá bara að senda mér mail á elsa.lara.arnardottir@akranes.is
Bless í bili. Elsa Lára.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.5.2009 | 22:47
Takk :)
Jæja þá er bekkjarmótið okkar búið og ég vildi bara þakka ykkur fyrir frábæra samveru um helgina. Mikið var gaman að sjá ykkur öll. Látum nú ekki líða svona langt þar til næst :) Bestu kveðjur til ykkar allra. Kveðja, Elsa Lára.
P.s. tók margar myndir um helgina og mun koma þeim inn á eitthvað læst myndasvæði, læt ykkur vita hvar :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.4.2009 | 18:08
Dagskrá :)
Hæ hæ.
Hér kemur dagskrá helgarinnar eða það sem er orðið tilbúið núna :) Annað mun koma betur í ljós um helgina eða í dag ... morgun.
Föstudagur
- Hittingur heima hjá Óskari Ara (sem á afmæli þennan dag, munið þið 1. maí). Hann á heima á Mánabraut 2. Hittingurinn hefst þar upp úr 21:00. Hver sér um sitt drykkjarvatn. Við ætlum að hafa það gaman saman.
Laugardagur
- Fjórhjólaferð klukkan 11:00 fyrir bekkjarfélagana. Þessi ferð kostar 5000 kr á manninn og það þarf að borga hana um leið og við hefjum ferðina. Það þarf að hafa pening með sér en ekki er tekið við greiðslukortum. Ferðin tekur um 70 - 80 mínútur. Þetta verður rosalega skemmtilegt.
- Humarsúpa a´la Maggi - staðsetning súpunnar kemur í ljós þegar við förum í fjórhjólaferðina og tímasetning.
- Við skoðum Heppuskóla, skólann sem við vorum í á unglingsárunum. Guðmundur Ingi skólastjóri ætlar að sýna okkur skólann. Ekki alveg komið á hreint hvort það verði fyrir eða eftir humarsúpuna a´la Maggi.
- Spurning um að skella sér saman í sund, í nýju sundlaug Hornafjarðar ef tími gefst til.
- Við borðum á Humarhöfninni um kvöldið, tímasetning er í kringum 20:00.
Við eigum eftir að ganga frá því og fá að vita hver getur tekið á móti hópnum í fyrirpartí eða eftirpartí eftir matinn. En það verður örugglega einhver tilbúinn í það.
Munið bara að koma klædd eftir veðri í fjórhjólaferðina ...
Takið með sundfötin ef við skellum okkur í sund ...
En það allra nauðsynlegasta er að hafa með góða skapið :)
Sjáumst hress og kát á Hornafirði annað kvöld.
Kv. nefndin.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.4.2009 | 09:01
Árgangsmót nálgast.
Sæl verið þið.
Nú fer árgangamótið að skella á, þ.e. næsta helgi.
Dagskrá kemur á netið fljótlega en allavega þá tökum við daginn snemma á laugardaginn, við byrjum á fjórhjólaferð um fjörurnar klukkan 11:00 þann dag.
Á föstudagskvöldið verður hittingur .... aðeins að hittast og spjalla saman. Nánar um það síðar.
Ýmislegt brallað skemmtilegt á laugardeginum :)
Sjáumst hress og kát um næstu helgi.
Kv. Elsa Lára.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.4.2009 | 09:18
Mæting
Hér kemur listi yfir þá sem hafa látið vita hvort þeir mæta, mæta ekki eða hafa ekki látið vita. Mjög mikilvægt að fá upplýsingar um það hver ætlar að vera með á okkar stór skemmtilega bekkjarmóti ;)
Elsa Lára: mætir
Þórhalla: mætir
Maggi: mætir
Lassi: mætir
Óskar: mætir
Jenný: mætir
Siggi: mætir
Guðný: ?
Valdís: ?
Einar: mætir
Gísli Svanur: mætir
Raggi: mætir
Sigga: ?
Helga: ?
Vala: mætir
Unnar: mætir
Stefán Ari: kemst ekki.
Óskar Ögri: ?
Vilma: ?
Fjölnir: ?
Jói: mætir
Edda: ?
Jón Helgi: ?
Elín: ?
Nú fer ég í það fyrir helgina að senda sms á þá sem hafa ekki látið vita og bið þá um að láta vita af sér á síðunni okkar svo við getum klárað að setja saman dagskrá fyrir þessa frábæru helgi saman ;)
Kveðja, Elsa Lára.
Bloggar | Breytt 17.4.2009 kl. 10:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
9.4.2009 | 21:37
Kveðja frá Stebba
Mikið varð ég glaður þegar ég opnaði bréfið frá ykkur en leiður að sama skapi þegar ég sá dagsetninguna því ég sé mér ekki fært að komast á verkalýðsdaginn þar sem ég er í námi með vinnunni þessa stundina og verð í prófum á þessum tíma. Flest ykkar hef ég ekki hitt síðan ég flutti frá Höfn. Ég sé að Vala hefur komið 2 síðan hún flutti og mínar heimsóknir eru jafnmargar. Síðast kom ég með foreldrum mínum, Torfa bróður, konu hans, minni konu og syni okkar. Það var um verslunarmannahelgina 2006.
Það var fyrir ýmsar sakir mögnuð heimsókn. Þetta var ein veðursælasta helgi sem ég man eftir. Ég fór á alla þá staði sem ég þvældist um sem strákur, labbaði um gömlu skólalóðin, skoðaði fótboltavöllinn, fór í sund, niður á höfn, mitt gamla æskuheimili sem er vart íbúðarhæft lengur, fann auðasvæðið þar sem krakkarnir léku sér, gekk fram hjá gömlu búðinni sem var beint á móti þar sem Siggi átti heima fyrst (man ekki hvað karlinn hét sem átti hana) þar voru keyptar ófáar Töggur, Lönguvitleysu, Einarslund, staldraði við Sindrabæ, fór í kirkjugarðinn og vottaði Ragga Björns virðingu mína. Fór svo á golfvöllinn og tók einn hring með pabba. Ég hitti engan af mínu gömlu félögum enda fríhelgi og flestir sjálfsagt farið úr bænum. Ég gisti í gamla elliheimilinu sem Halldór er búinn að breyta í fyrirtaks gistiheimili.
Ég bið vel að heilsa ykkur og vona að ykkur líði öllum vel. Það líður varla sú vika að ég hugsi ekki til æskuáranna á Höfn. Það eru og verða dýrmætar minngar.
Vonandi verða ekki 20 ár þangað til við hittumst næst.
Kveðja
Stebbi
p.s.
Setti inn nokkrar myndir, sennilega úr 10 eða 11 ára afmælinu mínu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.3.2009 | 00:44
Nokkur orð
Hæ.
Jenný hafði samband við mig í dag og var með snilldarhugmynd. En henni datt í hug að allir myndu reyna að finna fermingarmyndina sína, skanna hana og hafa meðferðis á bekkjarmótið. Hægt að hengja myndirnar upp þar sem við verðum.
Annars verðum við að fá að vita fjölda þeirra sem ætlar að mæta 1. maí n.k. Vinna fer að fara á fullt við að leggja lokahönd á helgina og strax eftir páska mun skipulag helgarinnar koma inn á síðuna okkar. Fylgist með, látið vita hvort þið ætlið að koma, ætlið ekki að koma, eða komið kannski á bekkjarmótið.
Látið vita í kommentum hérna fyrir neðan.
Kveðja, Elsa Lára.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
13.2.2009 | 13:10
Halló allir ... láta vita :)
Hæ, nú eru komnir nokkrir dagar síðan bréf hefur borist til þeirra sem ekki hafa látið vita af sér á síðunni.
Mikið væri gaman ef þið sem ekkert hafið kommentað, gætuð látið vita hvort þið komið eða komið ekki ... eða bara látið vita hvar þið eruð stödd og hvað þið eruð að gera.
Það væri svo gaman ef við gætum hisst sem flest.
En endilega, látið vita í kommentum, þið sem fenguð nafnið á síðunni og aðgang ... bara þannig að við vitum hvort við höfum náð til ykkar allra.
Með kærri kveðju, Elsa Lára.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.2.2009 | 20:50
Líst vel á þetta
Ákvað að henglsast til að skrifa eitthvað......hvurn andsk.... sem hengslast merkir svo 
Allavega þá langar mig bara til að segja að ég hlakka alveg ægilega til að sjá ykkur öll...
Gísli Svanur addaði mér meira að segja á fésbókinni og hann á þessi líka hrikaleg flottu börn.
Ekki hafði maður frétt af honum Jóhannesi A Ottósyni í 15 ár og svo dúkkar hann upp sem gullsmiður í danaveldi.. ja hérna.
Óskar er náttlega að blogga þannig að ég vissi að hann væri á lífi og svo framvegis.
Hef reyndar fylgst með þeim sem ég get með gúggl græjunni góðu. Var meira að segja byrjaður að gúggla alla á listanum og ætlaði útbúa svona net-samantekt á liðinu. Það endaði eins og svo margt sem ég geri, agalega metnaðarfullt í plönunarfasanum en algert crapp í framkvæmdarfasanum 
Hey, hress og kát á ammælisdaginn hans Óskars. Ef við erum skynsöm, þ.e. fólkið í borginni (og Akranesi), þá gætum við meira að segja deilt bílplássi austur...
yfir og út dúllurnar mínar og ekki gleyma að uppfæra höfunarupplýsingarnar.
Siggi
Bloggar | Breytt 6.2.2009 kl. 21:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2009 | 23:17
1. Maí 2009
Nú hefur dregið til tíðinda hjá okkur 75 genginu. Nú hefur verið ákveðið af mér og henni Þórhöllu algjörlega einhliða að bekkjarmótið verður haldið þann 1. maí og þarum kring. Allir þeir sem vettlingi geta valdið (hvurijir ættu svosem ekki að getað ráðið við það) ættu nú að hengslast til að commenta hérna á síðuna og láta vita af sér. Hann Jói í Hafnarnesi ætlar að mæta alla leið frá Köben þrátt fyrir það að danska krónan standi nú í 2500kr eða eitthvað álíka, og heyrst hefur að stemmingin verði rífandi. Þar sem að ég á afmæli þann 1.maí hef ég ákveðið að halda afmælið mitt í leiðinni og þætti mér mjög miður og tæki ég því í raun mjög persónulega ef ekki yrði full mæting og stemmingin kæfandi..............og svo allir saman nú hey!!!
Ykkar að eilífu Óskar Ara
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Tenglar
Börnin okkar
- Þórdís Eva Elsu barn
- Guðrún Ása, Aníta og Aðalsteinn Þórhöllu börn
- Dagmar og Elín Óskarsdætur
- Nína Ingibjörg Einarsbörn
- Gunnar 'Oli jennýar börn
Bloggsíður
- Elsa Lára Elsu blogg
- Þorsteinn Atli Elsu barn
- Óskar Ara Skara blogg
- Raggi Páls Ragga blogg

